|
|
26.12.2007 23:23:45 / Fanney
Nokkud daud sida hja okkur stelpur tad verdur ad vidurkennast... Erum vid hættar eda haha?? Tessi sida ma svosem hanga uppi fyrir mer en eg storefast um ad tad muni eitthvad bætast inna hana i nainni framtid. Tad verdur ad segjast ad myspace hefur algjorlega tekid voldin a ollum hehe. Allir ordnir mega myspace geeks! Vid hofum oft talad um tad stelpurnar ad hætta med tessa sidu tvi tad er fatt tilgangslausara en ad hafa hana, eeeen ta lætur kjanapowerid alltaf i ser heyra og vid hættum vid ad hætta hahaha... okei djok. En eg var ordin sjuklega treytt a tessu bloggi herna fyrir nedan ad hafa tad efst svo eg vard eiginlega ad aula nokkrum ordum utur mer hingad til ad hverfa tad. Og eg ætla bara ad nota tækifærid og oska ollum gledilegra jola og farsældar a nyju ari!! Tad ma alveg vel segja ad tetta ar hafi borid margar nyjungar og ahrifamikla hluti i skauti ser... Og eg held nu bara hreinlega ad tetta ar standi uppur sem besta arid hingad til at least. Hlakka hinsvegar rosalega til næsta ars, verdur gaman ad sja uppa hvad tad hefur ad bjoda! Takk ædislega fyrir tad gamla elskurnar minar... Hafidi tad gott yfir hatidarnar og vid sjaumst ogedslega hressar a ARAMOTUNUM Kvedja fra Danaveldinu. 
»
03.12.2007 18:57:09 / Fanney
Það er alltaf einhver lítill fugl sem hvíslar samviskubiti í eyrað á mér þegar mikilvægar manneskjur í lífinu mínu eiga afmæli og ekki koma afmælisblogg hingað fyrir vikið..... Því ekki gerið þið það stelpur, né fáið samviskubit!! Hehehe ég er í prófum og þar af leiðandi bitur og pirruð og finnst lífið virkilega niðurdrepandi í augnablikinu, EN ég meina um að gera að líta á björtu hliðarnar (sem eru engar) hahaha .................. En VIÐ erum orðnar svo stórskuldugar í afmælisbloggum að ég verð að taka þrennu á þetta!
Fyrst var það hún Freyja sem kom sér yfir í 16 árin, til hamingju með það sæta snót ;* 
Svo var það hún Martan okkar sem átti afmæli 1.desember fyrir tveimur dögum semsagt. Hún og Katla héldu saman uppá afmælið sitt einmitt á laugardaginn sem var ógeðslega gaman! Innilega til hamingju með daginn þinn ástin mín og 16 árin! Þú ert yndisleg elsku krútta og þú verður að fyrirgefa ömurlegt afmælisblogg en ég get því miður ekki eytt frekari tíma í það. Þú veist ég elska þig  
Svo er það hún Ásta Rósin okkar síðust en ekki síst til að verða 16.ára, og það er einmitt í dag 3.desember! Innilega til hamingju með daginn þinn elsku músa... vonandi ertu að hafa það gott  En eiiiitt enn sem mig langar að deila með ykkur  11.desember = JÓNA kemur heim eftir fáránlega langa fjarveru :**** 14.desember sem er föstudagur = Prófaloksdagur = SVAKA djamm!! 15.desember = Annar í prófalokum = einnig mega djamm 16.desember = heilagur dagur sem verður notaður til hvíldar, jafnvel þynnku  17.desember = Jólaball Versló = Djamm  18.desember = Jólaball MR = Held það segi sig sjálft 
Þar sjáiði hvað þessir fimm dagar munu einkennast af hehe skrautlegt plan!!! Svo fer ég til Danmerkur aðfaranótt 21.desember og verðum þar til 28.des. Ætlum að halda jólin á danskan máta með Ingu Rún sætu stóru systur minni og familíu sem verður geðveikt! Upplifa jól í Danmörku get ég ekki ímyndað mér öðruvísi en geðveikt! Versla á Strikinu og jólatívolíið mmmm jeg glæder mig meget til En þvi miður þá þýðir ekki að detta í þessar hugsanir núna, ógeðslegir 11 dagar framundan sem þarf að eyða öllum hugsunum í!!! Gangi ykkur vel í prófunum skvísur, sjáumst ógó hressar 14.desember 
»
30.11.2007 23:39:03 / -Jóna
Eitthvað sem ég fann, og er svo sattt..... YOU KNOW YOU HAVE BEEN IN FINLAND TOO LONG, WHEN……
1. You rummage through your plastic bag collection to see which ones you should keep to take to the store and which can be sacrificed to garbage
2. As you walk past the Parliament Building in Helsinki, and see the statue is titled "Svinhufvud" you no longer read it as "Swinehead"… instead you think "What a good Swedish name!"
3. When a stranger on the street smiles at you: a. you assume he's drunk b. he is insane c. he's an American
4. You don't think twice about putting the wet dishes away in the cupboard to dry
5. A friend asks about your holiday plans and you answer, "Oh, I'm going to Europe!" meaning any other Western European country outside Scandinavia.
6. You no longer scrunch up or fold your paper money. You always put it in your wallet
7. You see a student take a front row seat and wonder "Who does he think he is!!??"
8. Silence is fun
9. The reason you take the ferry to Stockholm is a. Duty free vodka b. Duty free beer c. To party hard….no need to get off the boat in Stockholm, just turn around and do it again on the way back to Finland
10. Your coffee consumption exceeds 6 cups a day and coffee is too weak if there is less than 10 scoops per pot
11. You pass a grocery store and think "Wow, I had better go in an buy something!"
12. Your native language has seriously deteriorated, now you begin to "eat medicine", "open the television", "close the lights" ´, and tell someone "you needen't to!" Expressions like "Don't panic" creep into your everyday language.
13. You associate pea soup with Thursdays
14. Your idea of unforgivable behaviour now includes walking across the street when the light is red and there is no WALK symbol, even though there are no cars in sight
15. Your notion of streetlife is reduced to the few teenagers hanging out in front of the railway station on Friday nights
16. Your bad mood becomes your good mood
17. Sundays no longer seem dull with all the stores closed, and begin to feel restful instead
18. "No comment" becomes a conversation strategy
19. You finally stop asking your class "Are there any questions?"
20. The fact that all of the "v's" and the "w's" are together in the phone directory seems right
21. Your old habit of being "Fashionably late" is no longer acceptable. You are always on time
22. Hugging is reserved for sexual foreplay
23. You begin to understand Jussi Jyylanpaarvi's broadcast of the hockey game
24. You refuse to wear a hat, even in –30 degree weather
25. You hear loud-talking passengers on the train. You immediately assume: a. they are drunk b. they are Swedish-speaking c. they are American d. all of the above
26. You give up on trying to find fat-free food and pile on the butter, cream and sugar
27. You know how to fix herring in 105 different ways
28. You eat herring in 105 ways
29. You no longer look at sports wear as casual wear, but recognize them as semi-formal wear
30. You can now reconstruct the missing letters on a building. For example :MERI…….LITTO OY
31. You have undergone a transformation a. You accept mustamakkara (Black-blood sausage) as food b. You accept alcohol as food c. You accept
32. You understand why the Finnish language has no future tense
33. You no longer have to search for the flushing mechanism
34. You no longer see a problem in wearing white socks with loafers
35. You no longer correct people who say MAC Donald's
36. You just love Jaffa
37. You've come to expect Sunday morning sidewalk vomit dodging
38. You know that "religious holiday" means, "let's get pissed."
39. You enjoy salmiakki
40. You know that "men's public bathroom" is another phrase for sidewalk
41. You know that more than three channels means cable
42. You get all Swedish jokes
43. When you're hungry you can peel a boiled potato like lightning
44. You've become lactose intolerant
45. You accept that 80 degrees C in a sauna is chilly, but 20 degrees C outside is freaking hot. Also, you accept -30 outside as a reasonable temperature, but anythuing under 22 indoors is unreasonable...
46. You give the air hostess your undivided attention when she demonstrates how to fasten, tighten and unbuckle your seatbelt. You eye the person sitting next to you suspiciously when they don't do the same.
47. You don't waste alcohol. When you spill your drink on the desk and actually contemplate slurping it up anyway
48. You stop asking "how are you" when you meet people. It's just plain "hi" or "mmph" or *nod*. Communicating becomes less and less important...
49. It doesn't matter what nationality the other person is, they'll understand finnish as long as you talk really loud. If this doesn't help, just talk very slow (but still very, very loud).
50. Upon hearing finnish when abroad, you immediately duck for cover and hope they go away. Whatever you do, you in NO WAY, UNDER ANY CIRCUMSTANCE utter a single finnish word (By god, they might want to come and talk to you, as if that was completely acceptable finnish behaviour when not in Finland!)
51. You start to believe that pulla is a treat.
»
07.11.2007 18:11:47 / -edda gudrun
Vildi gera smá afmælisblogg fyrir
merkilegustu manneskjuna í lífi mínu hana Jónu mína! Það eru
nú komin 16.ár síðan þessi gullmoli kom í heimin!
;*
Hvar ætti maður eiginlega að byrja að segja
frá þessari YNDISLEGU manneskju? Eins og allir vita sem þekkja hana
er hún ekki mikið hér á Íslandi heldur er hún oftar í útlöndum! Hún
er núna að skiptinemast á spáni og við stelpurnar bíðum spenntar
eftir henni hér. Ég kynntist Jónu þegar við vorum frekar litlar,
þegar hún flutti í Blómahæð 8 við hliðin á mér, við vorum nú frekar
feimnar fyrst en það lagaðist fljótt og urðum strax lang bestu
vinkonur og erum það auðvitað enn í dag, veit ekki hvar ég væri án
hennar. Erfitt alltaf þegar hún er svona mikið að fara í burtu og
svona en ég vona að því fari nú bara að ljúka og stelpuskjátan fari
nú bara að koma heim! Auðvitað stendur New York alltaf upp úr á
aldrei eftir að gleyma þeim ferðum. Og auðvitað er alltaf gaman að
fara í heimsókn til Jónu hvar sem hún er 
En hún Jóna er alveg yndisleg í
allar áttir!
*getur sagt henni
allt
*getur alltaf treyst
henni
*getur getur alltaf
treyst á hana ef þig vantar einhvern
Og auðvitað er hún alveg æðislega
hress og æðisleg sem þinn besti vinur ;*
[ÉG Á SVO FALLEGA VINKONU ;*]
Jóna er mjög dýrmæt og gott er að hafa hana
sem sína bestu vínkonu svo að gott er að hugsa vel um hana og hafa
hana alltaf sem vinkonu þína því það er erfitt að finna aðra svona
eins og hana Jónu, hún er mjög einstök og það skal
halda fast utan um svona góða hluti eins og hana. En þú ert alveg
Yndisleg við áttum okkur margar góðar stundir á yngri árunum t.d.
eins og leynistaðirnir okkar haha LS1,LS2 og LS3 haha get nú ekki
gleymt því. Áttum okkur leynistað í runna en alltaf á sumrin var
runnin tekin næstum því eða allaveg get ég sagt að það var vel
tekið af honum haha... og þegar Blómahæðin fór í götupartý út á
land og fundum aldrei tjaldstæði allt fullt keyrðum útum allt
landið og enduðum svo að tjalda á steinum.. Bú-ið upp í bústað hjá
ömmu þinni.. og svo þegar við fórum í handbolta? hvað var nú það..
haha nei við vorum nú alveg smá góðar! haha og svo auðvitað má
alls ekki gleyma saumaklúbbnum okkar made of edda and jona haha
...en já svo áttum við okkur
margar góðar stundir sem ég mun aldrei gleyma. Svo þegar þú kemur
heim förum við stelpurnar einhvern tíman saman til New York og
spánar eða einhvað og höfum gaman
En Jóna er alveg æðisleg vinkona, það er bara
ekki hægt að lýsa því í orðum þau eru svo mörg! Ég sakna þín alveg
endalaust og farðu vel með þig ástin mín ;*
Jóna þú ert yndi! love you ;*
ELSKA ÞIG ÁSTIN MÍN ;* þessi ferð var geggjuð


Af svölunum hjá Jónu í New York 
Í fyrra fór ég til Finnlands til hennar án þess
að hún vissi að, þetta var stuttu fyrir
afmælið hennar, ég mætti og Hannes(pabbi hennar) náði í mig upp á
flugvöll, fór svo í húsið þeirra og beið eftir að jóna væri búin í
skólanum bílstjórinn hans Hannesar keyrði svo okkur aðeins um og
setti okkur svo út ein einni kioski(sjoppu) rétt hjá skólanum
hennar meðan hann beið eftir henni. Þegar hún kom úr skólanum sagði
bílstjórinn að hann ætlaði að fara aðeins í sjoppuna því Hannes bað
jónu um að kaupa súkkulaði fyrir sig og þar beið ég og Hannes með
myndavélina. Jóna kom sá mig og við fórum báðar að HÁGRÁTA! haha
ofur fynndið gaurinn sem var að afgreiða vissi ekkert hvað var í
gangi og svo þegar allir róuðust niður sem jóna náði reyndar ekki
fyrr en daginn sem eg fór haha.... sagði Hannes greyjið manninum
hvað væri í gangi! OFURFYNNDIÐ! ;* elska þig gullið mitt
;*
Jóna mín þú ert algjört æði, elska þig svo mikið
ég hugsa stundum hvað væri ég án þín? hvað ef þú hefðir ekki flutt
í blómahæðina hefðum við kannski aldrei kynnst? vá ef eg hugsa
svona sé ég bara hvað ég er óendanlega heppin að eiga þig sem
vinkonu og vonandi veðum við það alltaf því ég væri jónu laus án
þín ástin mín;* sakna þín alveg endalaust hlakka til að heyra í þér
í kvöld og sjá þig sem fyrst ;*
við elskum þig allar þú er ÆÐI

ELSKA ÞIG ALVEG ENDALAUST ÁSTIN MÍN;*
MISS YOU DARLING :*
EDDA ♥
»
05.11.2007 12:16:56 / Fanney
Þar sem að þessi veikindasaga mín fer að verða never ending story og ég ligg heima enn einn daginn í röð og leiðindin í hámarki að þá ætla ég að skrifa smá um okkur allar eins og ég hef séð á mörgum oðrum siðum, það helsta sem er að gerast í lífinu kæta uppá þetta svona smá...... Þórhildur: Hún er nýkomin úr stuttri keppnisferð í Frakklandi með meistaraflokknum í handbó Hún er að standa sig brjálæðislega vel í handboltanum um þessar stundir eins og hún reyndar hefur alltaf gert. Henni gengur líka vel í skólanum og leggur rosalegan metnað í hann. Hún djammar tjaa ágætlega mikið bara Lætur skynsemina alltaf stjórna samt sem áður og djammar bara á réttu tímunum. Hún fer væntanlega að slaka á í öllu svoleiðis núna þar sem leikirnir í handboltanum eru að byrja á fullu. Þórhildur er ennþá á lafandi lausu stelpan en það er aldrei að vita hvað tímarnir framundan bera í skauti sér u go girl!! Marta Rún: Alltaf same old same old að frétta af þessari skvísu Hún stundar skólann af miklum krafti, lærir alltaf heima og ætlar sér mikið þar. Hún æfir ekkert eins og flestir vita en hún skellir sér að sjálfsögðu af og til í Sportarann og losar svita Marta er ekki þessi hörkudjammari þó svo að það komi fyrir og þá verður hún sú hellaðasta í bransanum sem er fyndnast . Hún er meira fyrir kúrið með kæró en hún og Elli eyða rosalega miklum tíma saman Marta er samt ekki ennþá smituð af kærastaveikinni, til hamingju með þann góða árangur stelpa!!!  Magga: Já hvar á ég að byrja, hún er óð í djamminu þessi hahah. Mamma hennar og pabbi eru úti í útlöndum í augnablikinu og hefur hún nýtt sér það til hins ýtrasta í djammið. Hún tók þrjá daga á þetta núna um helgina og að mér skillst var þynnkan í hámarki eftir þann pakka enda trúi ég því vel haha. Ég veit ekki hvort Magga sé að leggja sig 100 prósent fram í skólanum núna en ef ég þekki hana rétt þá efast ég um það. En hún er klár stelpan og hún getur þetta alveg þó að 100 prósentin uppá tölu séu ekki til staðar En eitt veit ég fyrir víst að hún stundar sporthúsið betur en skólann, hún er svakaleg í sporthúsinu og formið sem kéllan er komin í er sjúklegt Magga er ennþá á lausu, en eins og ég segi þá veit maður aldrei. Ekki oft sem að svona heitur fengur fær að tjilla á lausu svona lengi  Edda Guðrún: Við erum ekki alveg nógu duglegar að heyrast, en skólinn hjá henni er að ganga vel held ég bara og hún er dugleg þar. Hún og Grétar eru still on auðvitað, hjónin Þau eyða næstum öllum stundum saman og ekki skánar það núna þegar skvísan er flutt inn til hans Því fjölskylda Eddu er að byggja hús og búa hjá ömmu Eddu á meðan, og Edda fékk að flytja til Grésa pésa í staðinn. Hún er auðvitað hæst ánægð með það og ég stórefast um að hún flytji aftur til mömmu sinnar og pabba heheh Edda Guðrún djammar bara vel mikið myndi ég segja Þegar hún og Magga detta í það saman þá fá orð því ekki lýst hversu skrautlegt það er eða hversu mikið magn af áfengi þær hafa með sér hahah, tankar!!! Katla: Já það sem er að frétta af Kötlu í lífinu er bara.... þessi gella er ágætisdjammari og hún er án efa FYNDNASTI djammarinn!! Ég hlæ voðalega sjaldan jafn mikið og þegar ég er verð vitni af Kötlu undir áhrifum áfengis hehe. Hún stendur sig vel í skólanum, leggur mikinn metnað í hann og það sem hún tekur sér fyrir hendur eins og hún hefur verið þekkt fyrir undanfarin árin. Hún æfir handboltann á fullu auðvitað og gengur rosalega vel þar. Strákamálin? Já dúll og ekki dúll, hér og þar og allstaðar En nei hún er á lausu núna!! En ég myndi segja að það getur bara ekki verið að það standi lengi yfir svo ég myndi grípa til aðgerða if you are interested Annars er hún yfirleitt bara á tjillinu með mér og Þórhildi hehe við erum gott team! Jóna: Spánarbúinn okkar, sem við söknum svo!!! Allt það fína að frétta af henni á Spánarlandinu. Í fyrstu leyst henni rosalega vel á fjölskylduna sína eeeen þegar hún fór að kynnast þeim betur þá kom henni því miður engan vegin saman með þeim. Svo að bara í gær þá flutti hún til konu sem vinnur fyrir AFS á Spáni sem heitir Gracy. Jóna verður hjá henni bara í nokkra daga núna og svo kemur í ljós hvort hún flytji til vinkvenna sinna sem hún er búin að kynnast á Spáni. Eeeða hvort að Gracy ætlar að finna nýja familíu fyrir Jónu. Þannig þetta er óljóst eins og er en kemur bara very very fljótlega í ljós Jóna er ekki ennþá kominn með spænskan gæja uppá arminn en ég myndi segja að það er bara spurning um nokkra daga í viðbót hehe því eitt veit ég fyrir víst að Jóna er að heilla karlpeninginn uppúr skónum þarna á Spánarlandinu þar að segja ef að ég þekki Jónu mína rétt Annars veit ég líka að Jóna hefur nýtt hvert tækifæri sem hún hefur fengið til að fá sér í glas með vinunum þarna úti! Hún á btw frekar klikkaða vini þarna hahah En við söknum þín rosalega eins og þú veist rassgat :* Edda: Edda er alltaf wildness!! Hún vinnur ennþá í GS skóm heeeeeld ég! Og er auðvitað í Fg og stendur sig ágætlega bara, mætti nú alveg leggja meiri metnað í þetta en hún er meiker og meikar þetta að sjálfsögðu Edda er náttúrulega komin með kæró og þau eru mjög mikið saman! Edda er ekki ennþá komin með kæróveikina sem er náttúrulega hið besta mál Hún djammar eins og hún eigi lífið að leysa en tekur því rólega af og til hahah, eins og ég sagði wildness!! Ég sakna samt rosalega wildthing tímanna okkar Eddu en þeir hljóta að koma aftur!! Við erum drullu góðar saman! Annars hætti eða tók Edda sér pásu í handboltanum fyrir sumarið! Henni hefur ekki ennþá tekist að flikka sér á æfingu, en það kemur það kemur  Og ég sjálf, EKKERT að frétta af mér. Ég hef legið í veikindum síðan ég man eftir mér eða meira svona síðan á laugardaginn í þar seinustu viku. Og ég er orðin rosalega þreytt á lífinu eitthvað... Ég fór í gær, í fyrsta skipti síðan þá útúr húsi fyrir utan nokkrar læknisheimsóknir. Þá skrapp ég á tvo handboltaleiki niðrí Mýri aðalega til að heilsa uppá fólkið mitt sem ég hef ekki séð alltof lengi. Og líka til að horfa á stelpurnar keppa, djöfull var leiðinlegt að horfa á og fá ekki að spila með. Og svona verður víst framhaldið, þarf að sætta mig við að fá ekkert að æfa handbolta í rúmlega mánuð frá með þessum degi Og það er allt þetta sem veikindin mín hafa ollið. Ég hef ekki djammað lengi lengi og ég mun ekki djamma lengi lengi. Kæmi mér ekkert á óvart þó að næsta jukkerí hjá mér yrðu barasta áramótin!!! Og satt að segja verður mjög skrautlegt að sjá hvar ég stend þegar ég fer aftur í skólann En ég get ekkert gert í þessu nema reyna að ná mér góðri!! Ég ætla að reyna eftir bestu getu að komast í skólan á morgun samt. En já, mission complete Bless rassi!
»
04.11.2007 09:03:54 / -Jóna
Sælar og Blessaðar! Jæja síðasti dagurinn minn hjá þessari fjölskyldu, eða kannski betur sagt síðustu 2 klukkutímarnir mínir hjá þessari fjölskyldu. Var að enda við að kveðja mömmuna sem var heading off to work, ekki satt að segja fróðlegt, haha. Svo er ég að klára að rembast við að pakka núna, hmmm.. það gengur ekki vel, ég er búin að versla svo mikið að ég þurfti eiginlega að kaupa aðra tösku í gær til að fitta öllu oní. Svo þarf ég að taka þetta allt með mér í lest sem fer til La Coruna eftir 2 og hálfan, og það er ekkert svona ''farangursrými'' þannig ég þarf eiginlega bara að skella þessu á ganginn fyrir öllu hinu fólkinu, hahaha þetta verður ævintýri Allaveganna, ætlaði bara að skella kveðju á ykkur, því ég veit ekki hvernig internetið er hjá henni Gracy eða hvað lengi ég verð hjá henni !!! En, ADIÓS CHICAS.. te quiero mucho !! ;* -Jones !!! =)
»
31.10.2007 12:29:51 / Fanney
Þá er loksins komið að því að hún Katla okkar er orðin 16 ára!!! Á Halloween daginn sjálfann 31.október  
Þarna er hún sætasta stelpan  Katla mín, vá hvar á ég að byrja!!! Í FYRSTA lagi fyrirgefðu með þessi veikindi mín, ég sem ætlaði að horfa framhjá þeim í einn dag og mæta í skólann á afmælisdaginn þinn til að gefa þér rooooooooooosa stórt knús En nei þeim virðist ekkert vera að linna svo ég verð að mygla heima og senda þér strauma bara!! En já ég og þú eins og þú veist höfum átt frekar skrautlega æfi saman!! Við vorum þessi týpísku pirrandi börn sem gerðum allt sem við máttum ekki og gerðum alla fullorðnu brjálaða í kringum okkur! Djöfull hefði ég hatað okkur en það er annað mál Við vorum kallaðar "Tommi og Jenni" af eldra fólkinu. Það er eins vandræðanlegt núna og það var fyndið þá Við erum að tala um það að þegar við fórum með mömmu Kötlu í Hagkaup uppá Torgi einu sinni og sjálfur Ólafur Ragnar forseti var mættur að versla inn fyrir Bessastaði þá þurfti mamma Kötlu að halda okkur svo að við færum ekki að bögga hann hehe!! Hingað til hafa árin með þér verið guðdómleg Katlan mín, ég sé ekki eftir einu einasta prakkarastrikinu okkar!! og þau hefðu aldrei verið eins þessi ár ef þetta hefði verið einhver önnur en þú Fótboltaárin okkar eru í einu orði ógleymanleg!! Ég held að allir fótboltaþjálfarar okkar í gegnum tíðina hafi frekar hlegið af okkur heldur en nokkurntíman kennt okkur eitthvað í fótbolta!! (vorum samt sjúklega góðar ) Og þegar við ætluðum að koma Evu fóbóþjálfara og Bjögga (þáverandi HKþjálfara) saman á pæjumótinu á Siglufirði. Við keyptum fullt af gjöfum til að gefa þeim og skrifuðum bréf og létum sem þetta væri frá hvort öðru. Hahah vá hvað það var fyndið!! Appelsínuguli gellu bolurinn sem Eva fékk og guli regnstakkurinn sem Bjöggi fékk :´D Spánarferðin okkar í sumar var geðveiki!! hahah, við upplifðum þynnku í fyrsta sinn eins og hún gerist best og við urðum fyrir svakalegum vonbrigðum þegar við fundum hversu HRIKALEG hún getur orðið haha!! En ji minn ég ætla ekki að telja upp allar minningarnar okkar hérna, við geymum þær bara ;* 
Núna ertu orðin 16 ára músin mín. Þú ert frábær í alla staði og hefur alltaf verið. Þú og húmorinn þinn samankomnir er stórkostlegt skemmtiatriði fyrir okkur hin, enda verð ég að segja að þú varst nú ekki Hressleiki Garðaskóla fyrir ekki neitt ástin mín En svona væmin afmælisblogg eru leiðinleg, þú veist hvað mér og okkur öllum finnst um þig og hvað okkur þykir vænt um þig! Ef ekki væri vegna þín væri þessi vinahópur ekki svona bundinn og góður í alla staði. Haltu áfram að vera best!!!! Elskum þig allt ALLT of mikið :*  Bara aðeins að minna þig á Spán!!! ÚFF
 Svo er nú skylda að láta eina af Kotie Killing Kong og félugum, með öllu tilheyrandi, graffaðar og læti 
Innilega til hamingju með daginn þinn ástin okkar Hafðu það sem allrasta bestasta í dag! Þú átt það svo sannarlega skilið. We love you more than a fat kid loves chocolate cake, þá er nú mikið sagt Og farðu nú varlega í æfingaraksturinn Þú ert mesta gullið!!! Þínar bestustu vinkonur 

Og auðvitað Happy Halloween 
»
23.10.2007 13:22:30 / Fanney
Hæhó! Annar dagurinn minn sem ég er heima og ekki í skólanum vegna veikinda En ég ætlaði bara að skrifa smá til að blogga yfir þetta blogg fyrir neðan! Var orðin þreytt á því að hafa það efst........ http://www.leikjaland.is/games_swf.php?idcat=11&idGame=1814 Bubble struggle, þessi leikur er búin að vera að bjarga mér frá því að hafa ekkert að gera
Nema í gær eyddi ég öllum veikindardeginum í að lesa Ambáttina! Lifði mig sjúklega inní þessa bók og er ekkert lítið annars hugar eftir hana! Kláraði hana á tvemur dögum haha ég mæli svakalega með henni!!! Annars er ég farin að þekkja síðuna eins og hún á sér að vera, komin í gamla farið, dauðari en allur andskoti welcome back mr. deadness!!! hahah ok, greinilegt að veikindin í hausnum á mér eru farin að segja til sín! En yo eigiði góðan dag =) 
þessi veika stelpa kveður
»
16.10.2007 22:55:21 / Fanney
Yoo Ég fékk skyndilega tilfinninguna þegar ég var ein um það að bjarga þessari síðu frá dauða, núna er Jóna mín búin að taka við því embætti sýnist mér og er að standa sig með prýði ég man þó að það var svo druuuullu leiðinlegt, þannig ég ákvað að reyna að sína pínu lit og láta hana ekki eina um þetta. Ég veit hún verður ánægð og það er alltaf svo gaman að gleðja þessa krúsu . En vandræðanlegt að ég veit ekkert hvað ég á að blogga um Hmm skólinn er búinn að vera á fullu, félagslífið er eins skemmtilegt og það gerist en námið hinsvegar eins leiðinlegt og það gerist En ég býst við að kostir og gallar fylgi öllu þannig maður fær sitt lítið af hvoru. Helgarnar okkar höfum við svo yfirleitt nýtt okkur í ýmiskonar skemmtanir og aðalega þar sem að drykkja er við hendi hehe.... það klikkar seint Annars eru handboltaæfingar á næstum hverjum degi, mætti eiginlega segja að Mýrin sé okkar second home En við eigum fyrsta leikinn okkar við ÍBV úti í Eyjum núna um helgina. Þannig við förum þangað á laugardaginn og komum heim á sunnudaginn, held að planið hljómi þannig. Ég er strax byrjað að kvíða fyrir helvítis bakkafluginu, ég grúði mig með tárin í augunum ofan í Kötlu í seinasta bakkaflugi og það átti svo sannarlega að vera mitt síðasta!!! en NEI það er ekki svo auðvelt að sleppa frá þvi .... Annars byrjar vetrarfríið okkar á fimmtudaginn og stendur einmitt yfir fram á föstudag hahah svakalegir tveir dagar sem við fáum í frí, en svo plúsast náttúrulega helgin við þannig þetta gerir 4 daga frí. Vá hvað það verður yndislegt smá frí frá skólanum. En SHIT eigum við eitthvað að ræða kuldann sem er að yfirgnæfa allt hérna?? oj !!! Það voru núll gráður þegar ég fór í skólann í morgun, ég hélt ég myndi deyja, og það er rétt október! Með þessu áframhaldi verð ég orðin að snjókarli fyrir jól. Sem væri slæmt því ég er einmitt að fara til Danmerkur yfir jólin =) Við förum 21.desember, ætlum að prófa að halda "dönsk jól" með Ingu Rún stóru systu og familíu sem voru einmitt að flytja í nýtt hús úti sem við eigum eftir að fara sætsýn um =). Við verðum í viku, svo ég næ áramótadjamminu hehe. Þetta verður geggjað En já annars eru stelpurnar á fullu í æfingarakstrinum og nu eru bara 3 og hálfur mánuður í að Eddurnar fái bílprófin sín, og 4 og hálfur í Þórhildar. Svo stelpur eg sé allt benda til að við séum á leiðinni í sumarbústaðaferðir og útileigur næsta sumar, helmingurinn af okkur verður kominn með bílpróf, ú I like that  
Jóhann Fannar uppáhalds litli frændinn minn með gullin sín tvö sem hann vann á Ólympíuleikunum í Shanghai í Kína núna í seinustu viku. Mér þykir svo vænt um þetta krútt =) En jæja ég segi þetta komið gott, ætla að fara að sofa. Skóli á morgun og svo nooo more skóli þessa viku. Úff þvílikt yndislegt Eg veit ekki hvenær ég á von á næsta bloggi frá mér.... við skulum vona að það komi áður en ég dey í þessum kulda! En yo, fullt af nýjum myndum í aðalvalmyndinni as you can see Kíkiði á þær, og takk kærlega fyrir laugardagskvöldið stelpur :* 

Kveðja Fanney   
»
12.10.2007 10:10:58 / -Jóna
Jæja, í gær fékk ég samtal kukkan korter í 1 og var farin að sofa. Það var hún Fani (spánverji) sem hringdi í míg, og ég var vakin með þessu samtali, já.. klukkan korter í 1. Og þegar ég leit á símann þá sá ég að hún var búin að hringja 2svar. Ég lét þetta bara eiga sig, en svo eftir 1 mínútu hringdu hún aftur og ég svaraði og hún skellti á. Hmm, mér fannst þetta eitthvað skrýtið þannig ég hringdu aftur í hana, og hún skellti á. Þá fannst mér þetta mjöööög skrýtið og ákvað að hringja aftur og þá var skellt aftur á. Ég ákvað bara að gleyma þessu og fara aftur að sofa, neinei.. þá var hringt aftur eftir 5 mín. Það var Fani aftur. Ég náði ekki að svara því hún hringdi svo stutt, og gerði þetta 2svar í viðbót. Mér fannst þetta voðalega skrýtið og hélt því fram að mér væri bara eitthvað að dreyma og lagðist aftur útaf. Um morguninn leit ég á símann minn og sá að mér hafði ekki verið að dreyma og sá að Fani, hafði virkilega hringt svona um 7 sinnum í mig og skellt á, og líka þegar ég hringdi alltaf til baka. Ég skildi ekki beint hvað hún var að pæla.. að annað hvort væri hún eitthvað að djóka í mér eða væri bara blindfull á miðvikudegji og var eitthvað að leika sér. Þegar ég kom í skólann spurði ég hana ‘’afhverju hringdiru í mig oft í gær og skelltir alltaf á, og svo þegar ég hringdi til baka skelltiru á mig ? haha’’ og hún svaraði – ‘’ ooh já, ég var bara að segja hæ?’’… ég útskýrði að ég skildi ekki alveg hvað hún meinti, og hún útskýrði þá að þetta væri kallad ‘’toque’’ á spænsku og þetta væri eitthvað voðalega típiskt sem spánverjar gera til að sýna fólki að það sé að hugsa um það. Fólk hérna hringir víst í fólk svona 12 sinnum og svo hin manneskjan til baka aftur og þetta er víst alveg eins og að segja ‘’hææ, ég er að hugsa um þig’’. Þetta finnst mér eitt af því skrýtnasta sem ég hef heyrt og lennt í, vildi bara deila þessari skemmtilegu sögu með ykkur hahaha !!! 
þessi stelpa kveður og dauðsaknar ykkar ! sjáumst eftir 7 og hálfan woohooo
»
05.10.2007 17:57:33 / -Jóna
ARNAR DARRI OKKAR DUGLEGI !!!   http://www.fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=53147 btw... ég er orðin veik og það er ömurlegt !!! eigiði góða helgi !! 
»
01.10.2007 05:58:55 / -Jóna
Jæja, það er Mánudags morgunn og ég er að fara í skólann eftir svona 30 mínútur. Það er orðið frekar kallt hérna á morgnanna, svona um það bil 10-13 stiga hiti. Ég þarf að labba í 7 mínútur til að ná strætó á hverjum morgni, þannig einn þunnur jakki er eiginlega must. En þegar klukkan fer að ganga 10:30-11:00 og sólin er risin þá er alveg komin þokkalegur hiti, en hitinn er ennþá meiri klukkan 2:45 þegar okkur er hleypt úr skólanum. Þá er þessi jakki minn sem kom sér svo vel fyrir um morguninn bara hreinlega fyrir !!! Ég veit ekki afhverju, en þetta pirrar mig svo mikið. Afhverju þarf að vera svona mikill hitamunur á nokkrum klukkutímum, ég neyðist til að taka með mér heilan jakka og klæða mig þokkalega því það er svo kallt á morgnanna en svo þegar ég er búin í skólanum er ég algjörlega að steikjast úr hita bara útaf því um morguninn var svo kallt og gat ekki klætt mig í neitt léttara. What a problem? Hahaha. Ég hef voða lítið að segja, en ákvað bara að skella einu bloggi hingað inn bara svona uppá skemmtun fyrir ykkur, því ég veit að það er algjörlega ömurlegt þarna hjá ykkur á Íslandi !! Er það ekki? Og svo bara til þess að láta ykkur vita að ég er á lífi og segja ykkur mínar helstu hugsanir, hihihi.. sem í augnarblikinu eru já frekar óspennandi, but who cares , þessi síða má alveg við einu bloggi þó að það sé í ómerkilega kanntinum. But yes, ætla að halda áfram með mina sögu og hún fjallir að mesta leyti um helgina . Helgin var frekar fín, frekar róleg.. sem var nú reyndar ekki alveg planið en hún varð þannig að enda =) Á föstudaginn eftir skóla fór ég bara heim að borða með allri familíunni, einhver frændsystkini komu í mat líka þannig það var gaman að hitta þau Eftir mat og mjög stutta siestu (sem ég tók ekki) fórum við Sara á stað sem heitir Sárdoma. Það er greinilega aðal ‘’hittingar’’ staður unglinga hérna í Vigo, hehe. Það var samt bara mjög gaman, hitti fullt af nýju fólki, mest allt fólk sem var úr gamla skólanum hennar Söru, hitti meðal annars kærastann hennar Söru Eftir að hafa verið þarna í einhvern tíman, ákvöðum við að fara bara heim til hennar Söru og chilla þar. Seinna um kvöldið fór ég bara heim og fór snemma í háttinn ! =)  sara sæta Á laugardaginn fékk ég loksins að sofa aðeins út Seinni partinn fórum ég Sara og Fani í eitthvað moll sem heitir ‘’Gran Vía’’ sem ég var að fýla í botn. Það var með gjörsamlega öllum búðum sem þú getur ímyndað þér, enda ekkert smá stórt! Þar gat ég verslaði mér aðeins meira, þar á meðal geðveikan svartann jakka og svarta tösku sem ég er very ánægð með 
ingangurinn á mollinu góða jajaja... Eftir moll ferðina fórum við á einhvern markað þar sem kínverjar eða ‘’Chinos’’ á spænsku voru að selja allskonar skran og hasspípur hehe. Og viti men að ég keypti mér örugglega svona um 15 pör af eyrnalokkum ef ekki fleirri. Enda kostaði allt þarna um svona .50 evru – 2 hahaha Þegar klukkan var um 10 fórum við að skríða heim. Ég í háttinn og þær út á djammið!!! Á laugardags nóttina rigndi svo mikið, fyrsta rigningin síðan ég kom. Það rigndi svo mikið að ég vakti hálfa nóttina, plús það að það komu þrumur og eldingar af og til, sem er ekki beint mitt eftirlæti. Á sunnudaginn klukkan 9, neyddist ég til að vakna því það voru sex 11 ára stelpur niðri sem vildi endilega byrja leika sér í snú snú eða eitthvað. ‘’Systir mín’´ María, átti nefnilega afmæli á laugardaginn og það gistu 5 vinkonur hennar hjá henna þá nótt. Horfðu allar á ‘’High School Musical 2’’ (Á SPÆNSKU sem er sjúklega fyndið saman og höfðu það voða kósí . Dagurinn var chillaður hjá mér, gerði ekki mikið meira en að læra ensku sem tók 5 mínútur og chilla, Ég tók mér reyndar eina langa siesta klukkan 3 fyrst ég vaknaði svona snemma, oh það var æðislegt !! Um 5-6 leytið kíkti hann Pablo í heimsókn í smá og við, Pablo og Carlos vorum bara að chilla og horfa á The Transporter . En núna verð ég allavega að fara, er að verða of sein í skúlen. Leikfimi í fyrsta tíma.. voða skemmtilegt Sjáumst eftir 7 mánuði og 30 daga, eruði að fatta það.. ekki einu sinni 8 mánuður í mig … hahahahaha !!!, vá mér finnst svo skrýtið að það sé kominn Október !
»
27.09.2007 05:59:00 / -Jóna
Jæja, þá er það 27 september í dag, fimmtudagur auðvitað. Ég er byrjuð í skólanum.. og þá má segja án efa að tíminn er búin að líða miklu hraðar núna frá því ég byrjaði í skólanum. Sem ég gerði síðasta miðvikudag, fyrir viku ! Það var svo leiðinlegt að hanga heima mest allan daginn því að allir hinir voru í skólanum eða að vinna, og ég gat ekkert langt farið ein því ég kunni ekki beint á borgina né hvernig ætti að fara þangað, hehe. En já, ég byrjaði í skólanum síðasta miðvikudag, eða þá var einhverskonar kynnig fyrir okkur nýnemendurna, sem voru þó nokkuð margir því þetta er bara alveg eins og framhaldsskóli nema grunnskólinn er líka tengdur nema bara í annari byggingu. Svo á fimmtudaginn byrjaði ég alveg í skólanum. Frá klukkan níu til hálf þrjú, sem mér finnst bara nokkuð góður tíma.. og ég er held ég algjörlega ein um það hérna. Það segja allir að þetta sé langur skólatími og aðrir skóla tímar hérna á Spáni eru oftast frá klukkan níu til hálf tvö – tvö. Djöfull væri það NICE ! Mér leyst bara nokkuð vel á skólann og bekkinn minn. Það er bekkjarkerfi í skólanum mínum og mér finnst það nett þæginlegt =) Ég er alltaf í tíma með sömu krökkunum nema í ensku, estudios culturales?, og dibujo tecnicó (þar sem maður lærir að teikna teikningar, eins og arkitektar ). Það eru svona kannski 6 krakkar í ‘’ estudios culturales’’ haha. Ég ákvað að taka þann tíma því ég er ekki Kaþólsk og nennti ekki að láta einhvern prest eða nunnu kennar mér í eitt ár og þykjast vilja vita eitthvað um það sem þau voru að kenna mér. Ég sé án gríns presta og nunnur stundum labbandi um skólann, frekar fyndið og mér finnst þau alls ekki passa inn í þetta umhverfi. Ég meina, ég er búin að sjá núna í 3 daga löggur fyrir utan skóla að sekta unglinga (sekta, ekki taka fasta!!!) fyrir að vera að reykja og selja marijuana eða borros fyrir utan skólann. María er það kallað hérna og borros er eitthvað annað sem ég hef ekki hugmynd um en er kallað ‘’chocolate’’….very interesting haha. ‘’Reykiru?’’ var eitt af því fyrsta sem fólk spurði mig fyrsta daginn í skólanum, og ég svaraði ‘’nei’’ og þá sagði fólkið ‘’nei okay, en sígarettur?’’ ég svaraði þá ‘’nei líka’’. Unglingum hérna finnst víst venjulegra að reykja dóp heldur en sígarettur, enda er líka verið að selja það hérna beint fyrir utan skólann fyrir framan kennarana eins og ekkert sé venjulegra.. frekar fyndið. Ég hef séð stelpur sem eru kannski í 7unda bekk mesta lagi inná baðherbergi milli tíma reykjandi, enda er líka ekki hægt að anda þarna inni !! hahaha. Ég er búin að kynnast fullt af fólki í skólanum, það eru allir svo svakalega nice.. strax þegar ég labbaði inní tímann og folk sá að ég var ný þá labbaði það að mér og kyssti mig tvisvar á kinnarnar og knúsaði mig, hehe dálitið skrýtið en samt gaman =) Ég er svakalega ánægð með fólkið í bekknum mínum, ég held að þetta ár eigi bara eftir að vera skemmtilegt ! Fólkið sem ég er búið að vera mest með í tímum og hléum og svona er Sara sem býr meiri að segja bara rétt hjá mér. Hún er ógeðslega sæt, típiskt spænsk í útliti og gæti ekki orðið tanaðri !! haha, hún keyrir á ‘’moto’’ í skólann.. svona skellinöðru, það eru allir unglingar á svona hérna enda þarftu bara að vera 14! Mér finnst það algjör snilld hahaha. Besti vinur Söru er hommi og er búin að vera mjög mikið með honum líka, hann heitir Victor og er algjör snilli, verst að hann er hommi því hann er ótrúlega fallegur. Svo er það Fany (sagt alveg eins og Fanney hehe) sem reykir borros beint fyrir framan skólann á meðan að kennarnir labba framhjá, en eina sem þeir gera eru að hrista hausinn og labba í burtu, ég var í shokki þegar ég sá þetta gerast. Svo er auðvitað alltaf eitthvað fólk í kring, en ég ætla ekki að fara að lýsa öllum skólanum… bara þessum helstu og skemmtilegustu =), en jú ég verð að nefna bresku stelpuna, það er líka ein bresk stelpa í bekk með mér, eða hún er hálf bresk og hálf spænsk, og fyrir 4 árum bjó hún í London.. þannig hún talar fullkomna ensku og spænsku, sem er svo þæginlegt því ef ég fæ leið á að reyna að gera mig skiljanlega á spænsku kemur hún sér vel til hjálpar haha. En ég hef ekki mikið meira að segja, nema eftir skóla í dag fór ég bara eitthvað í smá stúss með honum Xosé Manuel (pabbanum ) og svo bara heim að borða ofcourse hehe, var að vakna svo úr mínu ‘’SIESTA’’ sem ég er btw byrjuð að ELSKA. Ég lagðist bara út í sólina I 40 míin og var bara að vakna hressari en ever Svo ætla ég bara að taka það easy í kvöld… ætla að fara að drífa mig að skella þessum myndum inn, tek fleirri myndir um helgina þar sem planið er að taka fyrsta djammið á laugardaginn soo we will see ég er búin að setja nokkrar voðalega ómerkilegar myndir inná facebook og þetta er allt að koma með heita vatninu, ég skelli þeim hingað inn annaðhvort í dag eða á mrg Sakna ykkar gellur Þið vitið að það er bara 8 mánuðir og 3 dagar þangað til ég get skellt einum á ykkur =)… hehehe.. get ready !!

playa américa =) 
verð að setja einhverjar myndir hehe =) 
þessi stelpa kveður og saknar ykkar !!
»
24.09.2007 17:53:58 / edda
FANNEY INGVARSDÓTTIR 16 ÁRA 
24. september, sem þyðir bara eitt að Fanney Ingvarsdóttir á afmæli í dag, 16 ára. hún er okkar yndislegasta vinkona og ég get alveg verið 100% á því að ef hún væri ekki til, þá væri þessi vinahópur ekki til heldur. ég gæti skrifað 5000 orða blogg hérna um hversu yndisleg manneskja þú ert fanney en ég vil engan drepa úr væmni. þú veist það sjálf og við stelpurnar segjum þér það oft. þú einhvernveginn hefur þann eiginleika að hafa og geta verið allt sem bestu vinkonur þurfa að hafa, .. við leitum til þín með öll okkar vandamál sem þú síðan hjálpar okkur út úr, eg veit tildæmis ekki hversu oft ég hef hringt í þig örugglega hágrátandi en endað símtalið skellihlæjandi útaf þér litla, besta vinkonan mín sem að hugsar betur um mig en ég geri sjálf svo ertu líka alveg jafn skemmtileg hvort sem þú ert edrú eða full (segjum smá skemmtilegri full kannski, því þá segiru allt sem þú hugsar, og dansar líka haha) ég veit ekkert hvar ég væri án þín elskan mín  ég bíð ennþá spennt eftir deginum sem ég fæ símtal frá þér og þú segir: "edda, ég er að koma yfir í FG" .. það kemur allt ég bíð 
við elskum þig allar mest i heiminum .. og fg stelpurnar söknum þin lika mest i heiminum TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN & HAFÐU ÞAÐ GOTT 
»
17.09.2007 17:17:36 / -Jóna
Jaeja Jaeja, eg er herna a einhverju net cafe i VIGO VIGO utaf thvi ad fjarans netid virkar ekki heima, og eg held ad thau seu ekkert ad fara ad laga thad, thvi spanverjar eru mest afslappadir i heimi og hanga ekki i tolvunni a netinu eins og vid islendingarnir.. eru frekar uti i solinni eda etandi !!! haha... ! Undanfarnir dagar hafa verid agaetir, betri en their fyrstu sem voru erfidastir i heimi. Helgin var aedisleg, var a strondinni alla helgina til 9 a kvoldin... sol allan daginn og sjuklega heitt =)... Hitti thar Isabellu sem er danskur/graenlenskur skiptinemi svona 20 minutur i burtu fra mer. Fjolskyldan min a tvo hus, eitt alveg a strondinni og svona annad svona 20-30 minutur i burtu, og vid gistum i husinu alveg vid strondinni ! Og forum svo aftur i hitt i gaer seint. A leidinni i husid byrjadi ad rigna og thrumur og eldingar.. sem var frekar fyndid thvi ad mamman byrjadi ad bidja a fullu a spaensku i svona korter, freeeekar vandraedalegt.. but i survived haha. Svo i dag vaknadi eg svakalega snemma.. half 10, og for ad hafa mig til.. horfdi a the patriot a SPAENSKU !! hahaha.. og svo forum eg og carlos i baeinn =) Keypti mer eitt sko par og einhverja boli. Thad eru gedveikar budir herna!! i like it, i like it alot.. haha. A mrg aetla eg aftur i baeinn, nema med Pablo Pablo er strakur sem eg er buin ad kynnast herna, svakalega skemmtilegur. Aetlum ad kikja i fleirri budir, thvi eg er ekki buin ad fara i H&M og Berhska.. pffpff...! Svo a morgunn klukkan 6 tharf eg ad fara a einhverja kynningu i skolanum minum, fa bokalista og soleis. Svo a midvikudaginn byrjar skolinn, naestum thvi. Fer i skolann klukkan 4 a einhverja kynningu, hitta folkid og fa stundartofluna mina og svona Svo a fimmtudaginn byrjar hann alveg. Fra klukkan 8.50 - 2.45 alla daga... ekki slaemt ekki slaemt. Timinn a eftir ad lida svo hratt thegar skolinn byrjar, fjuff.. En hey svo er planid ad koma heim 1sta Juni, eda einhvertiman i byrjun Juni Og tha by eg ENDANLEGA a islandi. Vaaa get ekki bedid hehehe. Eg var ad telja 8 man og 13 dagar eftir En jaeja, eg hef ekki meira ad segja i bili.. nema ad sjaumst eftir nokkra Love you girlies.. laet heyra i mer um leid og eg get.. og blogga aftur thegar eg kemst a netid aftur !! Sakna ykkar - Jona ég er að reyna að setja inn einhverjar myndir,.. en þetta er allt í hassi .. en hérna er allavega ein haha 
playa américa !! =) 
húsið... herbergið mitt er efst á hægri hönd og gluggin i miðjunni er baðherbergið mitt  koma fleirri.. I PROMISE
»
Síður: 1 2 3 ... 40
|
|